Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu

Halla Gunnarsdóttir óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Ekkert samtal sé í gangi við Samtök atvinnulífsins. Lögð hafi verið fram lausn fyrir samtökin rétt fyrir hádegi. Síðan þá hafi eitt símtal borist sem hafi verið þvert nei.„Staðan er sú að Samtök atvinnulífsins eru ekki hérna í húsi hjá okkur og hafa ekki komið til lausnamiðaðs samtals við okkur eins og við vonuðumst eftir. Þannig að við erum ekki í samtali eins og er,“ segir Halla.Boðað hefur verið til stjórnarfundar hjá VR klukkan 17:30 og hjá Fagfélögunum. Stéttarfélögin hafa frest til klukkan fjögur á morgun til að ákveða hvort slíta eigi kjarasamningum eða ekki. Halla óttast að samningar muni ekki halda.„Já, ég óttast það,“ segir Halla. „Við höfum verið mjög skýr með það að við teljum að það þurfi að koma til móts vi
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd