Rannsókn er lokið vegna gruns um vopnalagabrot um verslunarmannahelgina á Akureyri. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fimm menn, sem reyndust hafa leikfangabyssur í fórum sínum, verða ákærðir.Fyrstu helgina í ágúst voru fimm ungir menn handteknir nærri miðbæ Akureyrar, með aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra, eftir að lögreglu bárust tilkynningar um að fólki hefði verið ógnað með byssu á meðan fjölmenn hátíðarhöld stóðu yfir. VEIFUÐU DÓTABYSSUM ÚT UM BÍLGLUGGA Um hálfum sólarhring síðar greindi lögregla svo frá því að vopnin hefðu reynst það sem hún kallaði „mjög nákvæmar eftirlíkingar“. Síðar talaði lögregla um að þetta hefðu verið leikföng sem hefðu virst vegfarendum raunveruleg úr fjarska - mennirnir hefðu veifað þeim út um glugga á bíl og beint að fólki.Mönnunum var sleppt