Ný skáldsaga Steinars Braga kemur út hjá nýja forlaginu Fuglinum. Útgefandi segir fyrirkomulag ríkisstyrkja til bókmennta ýta höfundum út í útgáfubransann.„Ég og Steinar Bragi höfum verið miklir vinir lengi og höfum lengi furðað okkur á fjárhagslegri hlið bókaútgáfu fyrir rithöfunda,“ segir Halldór Armand Ásgeirsson, rithöfundur og útgefandi. Þeir segja hefðbundna bókaútgáfu ekki ganga upp fyrir rithöfunda. „Það þarf bara einfaldlega að hugsa upp einhverjar nýjar leiðir til að gera þetta,“ heldur Halldór áfram. FORLAGIÐ FÆR FORMLEGRA NAFN EN FLATKAKAN EHF. Halldór stofnaði útgáfu 2024 um bók sína Mikilvægt rusl. Sú reynsla varð byr undir vængi höfundarekins forlags sem á að skila meiru til þeirra sjálfra. Fyrirtækið að baki útgáfunni ber nafnið Flatkakan ehf. Þegar ljóst var að útgáfan