Viðvarandi fjármagnsskortur hefur leitt til uppsafnaðs skorts á námsgögnum í grunnskólum á Íslandi.Frumvarp til nýrra heildarlaga um námsgögn átti að bregðast við þessum vanda en þar voru lagðar til breytingar á stuðningi ríkisins við nýsköpun, þróun, gerð, þýðingu og útgáfu námsgagna, auk þess sem fjallað er um heimild ráðherra til að setja gæðaviðmið um gerð og útgáfu námsgagna sem njóta stuðnings hins opninbera.Málið hefur ratað á þingmálaskrá á fjórum þingum og bæði Ásmundur Einar Daðason og Guðmundur Ingi Kristinsson mæltu fyrir frumvarpinu þegar þeir voru ráðherrar menntamála.Í síðasta mánuði var 158. þing sett en í málaskrá ríkisstjórnarinnar sem var gefin út samhliða þingsetningu er frumvarpið hvergi að finna. Í skriflegu svari til Spegilsins staðfestir mennta- og barnamálaráðuneyt