Umhverfis- og orkustofnun hefur kynnt áform um að veita Samherja bráðabirgðaheimild til að starfrækja fiskþurrkun í Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit en starfsleyfi þurrkunarinnar var fellt úr gildi, með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.