Ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um leigubremsu ríkisstjórnarinnar eru „fullkomlega óábyrg“, að mati Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hann spurði á Alþingi í dag hvort seðlabankastjóri teldi stjórnvöld á Norðurlöndum ekki kunna grundvallarhagfræði og líkti stýrivöxtum við verðstýringu.