Þrjú ár frá upphafi stríðsins á Gaza - Ísraelsmenn minnast fórnarlamba árásar Hamas

Þrjú ár eru frá hryðjuverkaárás Hamas-samtakanna á Ísrael sem var kveikjan að stríðinu á Gaza. Þess er minnst víða í Ísrael í dag. Vopnahlé hefur verið í gildi á Gaza í tæpt ár en þrátt fyrir það eru gerðar árásir þar reglulega.Í árás Hamas voru um 1.200 manns drepnir og 250 til viðbótar teknir í gíslingu. Mestur var skaðinn á Nova-tónlistarhátíðinni þar sem 378 voru drepnir, þar af fjöldi ungs fólks, og 44 gíslar teknir. Árásin þótti sérstaklega grimmileg og miskunnarlaus.Ísraelsmenn brugðust við með fordæmalausum árásum á Gaza. Í þeim hafa yfir 74.200 manns verið drepnir samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Hamas-samtakanna. Sameinuðu þjóðirnar telja tölurnar áreiðanlegar. Íbúar á Gaza segja héraðið nánast óbyggilegt eftir árásirnar. Um 80% íbúa hafa misst heimili sín.Þrjú ár eru liðin frá því
Þrjú ár frá upphafi stríðsins á Gaza - Ísraelsmenn minnast fórnarlamba árásar Hamas

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd