Lögreglan á Suðurnesjum leitar ökumanns sem ók á gangandi vegfaranda á rafhlaupahjóli fyrir utan Kjörbúðina við Hafnargötu Reykjanesbæ í morgun.Lögreglan segir að atvikið hafi átt sér stað rétt fyrir hádegi. Einstaklingurinn sem ekið var á hafi slasast við áreksturinn og hafi leitað aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.Í myndskeiði með færslunni má sjá ökumanninn aka á einstaklinginn á nokkrum hraða á gangstétt fyrir utan verslunina. Ökumaðurinn er búinn mótorhjólahjálmi og því ekki hægt að greina útlit hans og aldur.Þeir sem hafa upplýsingar um ökumann hlaupahjólsins eru hvattir til að hafa samband við lögreglu.