Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra tók á móti nokkrum af helstu hlaðvörpum landsins á fundi í morgun. Þar voru málefni fjölmiðlanefndar rædd en einn hlaðvarpara, Þórarinn Hjartarson sem rekur hlaðvarpið Ein pæling, segir að eftir að Logi lýsti yfir stefnubreytingu gagnvart nefndinni hafi hún sett í sjötta gír og hert sektasóknina á hendur þeim.