Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti ákvörðun sína í morgun um að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum.Sonja segir að þótt verðbólga hafi aukist hafi verið ljóst að hún hefði líklega haldist óbreytt ef ekki hefði komið til hækkunar á virðisaukaskatti eftir tímabundna lækkun í sumar og hækkunar á olíuverði vegna átaka í Miðausturlöndum. Verðbólgan sé ekki drifin áfram af eftirspurn.„En svo er auðvitað svolítið snúin staða. Það hefur hægst á á vinnumarkaði, það er aukið atvinnuleysi, sérstaklega meðal innfluttra og ungs fólks, en er líka að aukast hjá innlendu fólki. Staðan er þessi: við erum komin með mikla verðbólgu og hátt vaxtastig en hagkerfið er í kól
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd