Minnst 19 drepnir í árásum á Úkraínu – ESB bætir í fjármagn til Úkraínu

Minnst 19 voru drepnir þegar Rússar gerðu árásir víða í Úkraínu í nótt. Af þeim voru 13 drepnir þegar fjölbýlishús var sprengt í bænum Pryluky, sem er í Chernigiv-héraði austan við Kyiv. Tveir voru drepnir í Kyiv.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu varaði í gær við því að Rússar undirbyggju umfangsmiklar árásir sem beint væri gegn orkumannvirkjum. Þetta yrðu með verstu árásum á þeim hátt í fimm árum sem stríðið hefur staðið. Árásir hafa þegar aukist í Kyiv sem hefur alltaf gerst á þessum árstíma meðan á stríðinu hefur staðið. Tilgangurinn er að gera íbúum erfitt fyrir að hita hús sín þegar kólna fer í veðri.Í nótt var minnst 50 eldflaugum og 130 drónum skotið að fjölda héraða í Úkraínu. Hluti þeirra var skotinn niður en Zelensky segir erfiðast að ráða við sprengjuflaugarnar og nauðsynlegt s
Minnst 19 drepnir í árásum á Úkraínu – ESB bætir í fjármagn til Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd