Fangaverðir í þjálfun grunaðir um að berja fanga

Tveir fangaverðir eru grunaðir um að hafa gengið í skrokk á fanga í Vestre-fangelsinu í Kaupmannahöfn. Fangaverðirnir eru báðir frá Kosovo. Þeir eru í starfsþjálfun í Danmörku vegna áforma stjórnvalda um að láta Kosovo sjá um afplánun fanga af erlendum uppruna sem hlotið hafa dóma í Danmörku.Fangaverðirnir eru grunaðir um að hafa barið fangann í andlitið og búkinn. Þeir neita sök.Dönsk stjórnvöld hafa samið við ráðamenn í Kosovo um að leigja þar fangaklefa og kaupa þjónustu erlendra yfirvalda. Hugmyndin er að senda fanga þangað til afplánunar. Það eru fangar frá löndum utan Schengen-svæðisins. Þau áform hafa verið umdeild í Danmörku.Fangaverðir frá Kosovo sem eiga að gæta fanganna frá Danmörku þegar þeir afplána dóma í Kosovo þurfa að starfa í Danmörku um hálfs árs skeið. Það er til að þei
Fangaverðir í þjálfun grunaðir um að berja fanga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd