Harpa Sören Ragnarsdóttir hefur hýst fjölda au pair-stúlkna, til að mynda frá Filippseyjum, og segir aðstoð þeirra hafa gjörbreytt heimilislífinu til hins betra. Lítið sem ekkert eftirlit hafi verið með au pair, sem ætti að bæta í stað þess að banna komu filippseyskra stúlkna alveg.