Lögreglu bannað að nota hvellsprengjur í mótmælum

Frönsk stjórnvöld hafa bannað lögreglu tímabundið að nota hvellsprengjur við störf sín í mótmælum nemenda sem staðið hafa yfir í tæpar tvær vikur. Ástæðan er að mótmælendur hafa slasast við notkun slíkra sprengja, sem hefur leitt af sér ásakanir um að lögreglan gangi of langt í störfum sínum.Laurent Nunez innanríkisráðherra Frakklands tilkynnti þetta í morgun og sagði að þetta bann stæði þangað til ljóst væri að fullu hvað hefði gerst í þeim tilfellum þegar fólk slasaðist. Bannið gildir einungis um mótmæli framhaldsskólanema. EINN MISSTI HÖND OG ANNAR NOKKRAR TENNUR Alvarlegasta slysið varð á mánudaginn þegar 15 ára nemi missti hönd af völdum slíkrar sprengju. Heimildum ber ekki saman um hvort henni hafi verið skotið á hann eða hann hafi tekið sprengjuna upp. Móðir piltsins heldur því f
Lögreglu bannað að nota hvellsprengjur í mótmælum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd