Enn er óráðið hver niðurstaðan verður í kjaradeilu VR og fagfélaganna við SA. Fulltrúar þeirra ræddu saman í gær og stefnt er á frekari fundahöld í dag. Þá gæti ráðist hvort félögin segi samningunum upp, líkt og þau fengu heimild til á mánudag, eða hvort þeir gildi áfram.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir ekkert ráðið um hvað fundir dagsins leiði af sér. Það sé mikilvægt að félagsfólk VR þurfi ekki að taka á sig fleiri launalækkanir. Samningur sem Breiðfylkingin undirritaði í gær sé ekki í takt við áherslur VR.Hún voni að SA mæti lausnamiðuð til leiks enda sé engum í hag að stefna öllu í upplausn á vinnumarkaði. ÞURFA TRYGGINGAR FYRIR SITT FÓLK > Það er náttúrulega mjög sérstakt að við erum búin að sitja hérna tilbúin síðan í lok ágúst, þegar þessi forsendubrestur lá fyrir, til samta