Seðlabankinn hækkar hvorki né lækkar stýrivexti, sem ákvarða vaxtastig í landinu, og haldast þeir í átta prósentum. Peningastefnunefnd bankans tilkynnti þetta í morgun. Verðbólga mælist enn of há sem og verðbólguvæntingar, jafnvel þó farið sé að hægja á efnahagsumsvifum. Hvað er undirliggjandi verðbólga?Mæld verðbólga sýnir hversu mikið verð á vörum og þjónustu hefur hækkað á einu ári. Undirliggjandi verðbólga er...