Það rigndi meira á landinu en yfirleitt í septembermánuði, nema á suðvesturhorninu. Nokkrar skriður féllu á Vestfjörðum, Austfjörðum, Suður- og Suðausturlandi. Loftþrýstingur var óvenjulágur.Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofunnar yfir tíðarfar í september. HITI RÉTT YFIR MEÐALLAGI VÍÐAST Meðalhiti á landinu var 8,0 stig og var rétt yfir meðallagi um næstum allt land. Á nokkrum stöðum á Norðausturlandi var hitinn lítillega undir meðallagi. Hæstur hiti mældist í Bakkagerði á Borgarfirði eystra. Þar var hann 22,5 stig áttunda september.Mestur hiti að jafnaði var á Steinum undir Eyjafjöllum, eða 10,2 stig. Lægstur var hann á Þverfjalli, eða 2,2 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal eða 5,6 stig. 124 SÓLSKINSSTUNDIR Í REYKJAVÍK Rigning var yfir meðallagi á stærstum hluta l