Stýrivextir Seðlabankans haldast óbreyttir eftir að hafa hækkað síðustu þrjá stýrivaxtaákvörðunardaga fyrir daginn í dag. Stýrivextirnir verða áfram 8,00 prósent. Stýrivextir höfðu hækkað þrisvar í röð fyrir stýrivaxtaákvörðunina í dag og fóru síðast í 8,00 prósent. Þeir höfðu því hækkað um 0,75 prósentustig frá því í febrúar þegar vextirnir voru 7,25 prósent. Þeir fóru á síðustu árum mest í 9,25 prósent 2023 og 2024. Breiðfylkingin, sem er samflot Starfsgreinasambands Íslands, Eflingar, Samiðnar og Byggiðnar, komst í gær að samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að segja ekki upp kjarasamningum. Meginþáttur í þeim er að reyna að halda vöxtum og verðbólgu niðri.Fulltrúar VR og fagfélaganna ræða við SA í dag. Ekki er ljóst hvort samkomulag næst þeirra í milli áður en frestur til að segja