Raungengi krónu aldrei hærra og ekki sjálfbært til lengdar

Gengi íslensku krónunnar, sem var sterkt fyrir, hefur styrkst enn meira í sumar og haust. Frá áramótum nemur styrkingin um 4,7% og meira en helmingurinn hefur komið fram síðan í júlí. Ein evra kostaði rúmlega 147 krónur um áramótin en stendur nú í 137 krónum – er sem sagt um 7% ódýrari – en hafa verður í huga að evran hefur almennt gefið eftir gagnvart öðrum gjaldmiðlum – stórum og smáum.Miðað við ýmsar hagtölur hefði kannski frekar mátt búast við gengislækkun en ekki hækkun. Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, bendir meðal annars á að vöruskiptahalli – sem verður þegar meiri verðmæti eru flutt inn en eru flutt út – hafi sjaldan verið meiri. Raunar þurfi að fara aftur til ársins 2006, þegar verið var að reisa Kárahnúkavirkjun, til að finna viðlíka halla. INNFLUTNINGUR
Raungengi krónu aldrei hærra og ekki sjálfbært til lengdar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd