Ríkisstjórnin hefur heitið því að halda hækkunum opinberra gjalda innan 2,5 prósenta á næsta ári, styrkja barnabótakerfið, setja skorður við hækkunum húsaleigu og greiða skuldsettum heimilum sérstakar vaxtabætur ef verðbólga verður áfram mikil. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, greinir frá í færslu á Facebook. Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn náðu í gærkvöldi samkomulagi við...