Birtu 29 dóma úr saka- og einkamálum eftir kvörtun frá fréttastofu

Þann 18. ágúst hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 17 dóma úr einka- eða sakamálum á vef dómstólsins frá árinu 2026. Uppkveðnir dómar á árinu voru aftur á móti 50 - og því 33 óbirtir. Þetta fer gegn reglum um birtingu dóma og þegar fréttastofa leitaði svara var skýringin sögð álag og mannekla hjá dómstólnum.Þetta þýðir að í þrjátíu og þremur málum höfðu aðeins þeir sem voru viðstaddir uppsögu í dómsal á Akureyri fengið upplýsingar um dóminn og almenningur því ekki upplýstur um málalyktir. Dómarnir sem ekki voru birtir greindu frá sekt og þá refsingu - eða sýknu - fólks sem hafði verið ákært fyrir líkamsárásir, kynferðisbrot og önnur alvarleg brot, eins og til dæmis sprengingu í Múlagöngum. STARFSFÓLK HAFÐI EKKI KOMIST YFIR AÐ BIRTA DÓMA VEGNA ÁLAGS Málið vakti mikla athygli, spren
Birtu 29 dóma úr saka- og einkamálum eftir kvörtun frá fréttastofu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd