Breiðfylkingin búin að semja en VR og fagfélögin funda í dag

Stórum hluta þeirrar óvissu sem ríkti í kjaramálum var aflétt í gærkvöld þegar Breiðfylkingin skrifaði undir samkomulag við Samtök atvinnulífsins. Þar með varð ljóst að þau segja ekki upp kjarasamningum heldur hefur verið samið um að þeir gildi áfram þrátt fyrir forsendubrest.Enn er óráðið hver niðurstaðan verður í kjaradeilu VR og fagfélaganna við SA. Fulltrúar þeirra ræddu saman í gær og stefnt er á frekari fundahöld í dag. Þá gæti ráðist hvort félögin segi samningunum upp, líkt og þau fengu heimild til á mánudag, eða hvort þeir gildi áfram.Frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út á morgun. Í dag kynnir Seðlabankinn stýrivaxtaákvörðun sína.Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn mynda Breiðfylkinguna sem samdi í gærkvöld. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasamba
Breiðfylkingin búin að semja en VR og fagfélögin funda í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd