Bleyta víða um land

Landsmenn mega víðast hvar búast við dálitlum skúrum eða jafnvel slydduéljum í dag. Austanlands verður þó bjartara yfir, allavega framan af.Ef fólk er á ferð milli bæja er gott að hafa í huga að sums staðar eru hálkublettir á vegum, svo sem á Mývatnsöræfum, Biskupshálsi og Háreksstaðaleið, sömuleiðis á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði. Á Fjarðarheiði er hálka og hálkublettir á Fagradal,Veðurspáin er svohljóðandi:Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s í dag og víða dálitlar skúrir eða slydduél, en lengst af þurrt og bjart austanlands. Hiti 2 til 9 stig að deginum.Suðaustan og austan 8-15 á morgun, en 13-20 um landið suðvestanvert. Víða rigning, sums staðar talsverð úrkoma suðaustantil, en væta með köflum á Norðurlandi. Hiti 4 til 10 stig. Lægir suðvestanlands síðdegis og dregur úr vætu
Bleyta víða um land

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd