Meirihlutinn á litáíska þinginu styður breytingartillögu á stjórnarskrá um að fjarlægja bann við kjarnorkuvopnum úr stjórnarskrá landsins. Með þessari breytingu er verið að gera það mögulegt að geyma kjarnorkuvopn bandaþjóða í landinu.Litáíska ríkissjónvarpið greinir frá.Tillagan um breytingu á stjórnarskrá var samþykkt í fyrstu umræðu á litáíska þinginu, Seimas, í gær. 106 þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni, 18 voru á móti og sex sátu hjá.Ráðgert er að lokaatkvæðagreiðslan um hvort fjarlægja eigi bann við kjarnorkuvopnum úr stjórnarskrá fari fram 12. janúar og þá þarf samþykki að minnsta kosti 94 þingmanna af 141 á þingi Litáen til þess að breytingin verði gerð á stjórnarskránni.Juozas Oleksas forseti þingsins sagði fyrir atkvæðagreiðsluna að afnám bannsins myndi styrkja seiglu og fæ