Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, hefur náð samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um áframhaldandi gildi kjarasamninga. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, greinir frá þessu í Facebook-færslu í kvöld. Í færslunni segir að markmiðið sé að tryggja áframhaldandi gildi samninganna og skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta. Vilhjálmur þakkar aðkomu forsætisráðherra sérstaklega en hann og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hafa fundað tvívegis með Kristúnu Frostadóttur í dag. „Í niðurstöðunni er fjöldi atriða sem skipta launafólk og fjölskyldur þess miklu máli,“ segir Vilhjálmur og kveðst hann fagna niðurstöðunni innilega.