Margrét McArthur Friðriksdóttir undirbýr nú kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna synjunar Landsréttar um að áfrýja meiðyrðamáli gegn henni. Margrét greinir frá þessu í tilkynningu.Í júní var Margrét sakfelld fyrir ummæli sem hún lét falla um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Margréti var gert að greiða 200.000 króna sekt. Í tilkynningu Margrétar segir að þann annan október hafi Landsréttur neitað beiðni hennar um að áfrýja dómnum.Málavöxtu má rekja til þess að Margrét sakaði Barböru um fölsun vitnisburða, lauslæti og misnotkun dómsvalds. Hún sakaði Barböru meðal annars um hjúskaparbrot og ástarsamband við Símon Sigvaldason, sem um tíma var dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur. Barbara kærði ummælin, sem birtust í Facebook-færslu, til lögreglu, sem síðar gaf út ákæru á hendur Margréti