Christa Pike er með fulla meðvitund eftir tvær misheppnaðar aftökur. Pike var í seinustu viku sprautuð tvisvar með banvænum skammti af pentóbarbítóli. Hún lést ekki og var því aftöku hennar frestað. Eftir misheppnuðu aftökuna var Pike flutt á sjúkrahús þar sem hún lá hætt komin í öndunarvél. Samkvæmt upplýsingum frá lögmönnum hennar hefur hún náð fullri meðvitund og er talandi. Lögmennirnir segja að Pike sé sú eina sem lifað hefur af fullreynda aftöku í Bandaríkjunum. Ekki stendur til að fella niður dauðarefsingu Pike en aftökum hefur þó verið frestað í Tennessee út árið þar sem þetta er önnur misheppnaða aftakan í ríkinu á þessu ári. Fangelsismálastjóri Tennessee-ríkis hefur sagt af sér vegna málsins.