Þingið á að geta klárað bókun 35. Með afstöðu til frumvarps um það felist afstaða til EES-samstarfsins, að mati utanríkisráðherra. Hún mælti fyrir frumvarpi um bókun 35 á Alþingi í dag. FJÓRÐA SKIPTI SEM MÁLIÐ ER LAGT FRAM Þetta er í fjórða skipti sem þetta mál er lagt fram á Alþingi, bæði ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og núverandi ríkisstjórn hafa lagt það fram.Bókun 35 er breyting á lögum um Evrópska efnahagssvæðið. Í þeirri breytingu felst að ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað.Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum. Þetta seg