Tímamót eru nú í starfsemi Eimskips við Sundahöfn þegar gámakraninn Jaki er rifinn. Síðasta hífing á krananum var 26. september síðastliðinn og fáeinum dögum síðar mættu kunnáttumenn frá Bretlandi á svæðið til að taka tækið niður og færa í brotajárn. Því verki á ljúka fyrir næstu mánaðamót.