Þingmenn fimm flokka vilja þyrlu á Akureyri

Tveir létust og sex slösuðust í fjögurra bíla árekstri á Jökuldal um helgina. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang. Frá því að útkallið barst og þangað til þyrlan lenti liðu 118 mínútur.Þriðjungur allra útkalla Landhelgisgæslunnar 2024 var á Suðurlandi. Sjaldnar er óskað eftir aðstoð þyrlunnar á Austurlandi því flugtími frá Reykjavík þykir of langur.„Ef við tökum til dæmis Egilsstaði þá er flugtími fyrir þær þyrlur sem við notum í dag um einn og hálfur tími í besta falli. Og ef við tökum það veður sem við búumst við að vera að berjast í að þá er það nær tveimur,“ segir Sigurður Ásgeirsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni.Í greinargerð með tillögunni um staðsetningu þyrlu er bent á landfræðilega stöðu Akureyrar og að þar séu þegar til staðar mikilvægir innviðir. Flutningsmenn v
Þingmenn fimm flokka vilja þyrlu á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd