Paramount lauk í dag við kaup á Warner Bros. Discovery. Við samrunann varð Skydance Corp. til, nýr fjölmiðlarisi sem sameinar tvö stærstu kvikmyndaver Hollywood, streymisveitur og nokkra af stærstu fjölmiðlum Bandaríkjanna.Búast má við því að með tilkomu Skydance breytist Hollywood, kvikmyndaiðnaðurinn og fjölmiðlalandslagið í Bandaríkjunum til frambúðar.Samruninn hefur verið harðlega gagnrýndur og þykir verulega umdeildur. Hann hefur mætt harðri andstöðu innan Hollywood. Margir óttast að sameining tveggja sögulegra keppinauta leiði til fjöldauppsagna, færri tækifæra fyrir skapandi fólk og skaðlegrar samþjöppunar á markaði. SÖGULEGUR DAGUR Skydance dregur nafn sitt af fyrirtæki sem forstjórinn David Ellison stofnaði upphaflega áður en hann náði yfirráðum yfir bæði Paramount og Warner Br