Marko Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er opinn fyrir frekari uppbyggingu í varnarmálum hér á landi. Stuttri heimsókn hans lauk í dag. Hann hélt meðal annars fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra þar sem rædd voru varnarmál, milliríkjaviðskipti og fjárfestingar. Yfirbragð heimsóknarinnar var jákvætt og Þorgerður Katrín sagði samtalið milli ríkjanna alltaf að batna.Viðbúnaðurinn var mikill vegna heimsóknarinnar en lögreglan segir hana þó hafa verið einfaldari í framkvæmd miðað við fyrri heimsóknir.