Börn verða oft fyrir stafrænu kynferðisofbeldi og geta einnig verið gerendur. Þekktustu brotin eru dreifing á myndum og svo gervigreindarmyndir þar sem barnaníðsefni er skeytt saman við raunverulegt andlit barns. Gerendur gera sér jafnvel ekki grein fyrir því að þeir séu að brjóta lög og brotaþolar vita oft ekki af því að brotið hafi verið á þeim.Tilkynningar um stafræn kynferðisbrot hafa aldrei verið fleiri. Börn eru viðkvæm fyrir slíkum brotum. Í ljósi þess standa ríkislögreglustjóri, lögregluembættin og fjölda stofnana og samtaka fyrir vitundarvakningu um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna í október.