Umhverfis- og orkustofnun telur hverfandi líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu norðaustur af Íslandi. Meiri líkur séu á að kolvetni hafi varðveist norðar á Jan Mayen-hryggnum, norður af Drekasvæðinu. Stofnunin telur því ekki forsendur fyrir því að auglýsa eftir umsóknum um ný leyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis miðað við núverandi aðstæður og þekkingu....