Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kveðst vongóð að stéttarfélögin og Samtök atvinnulífsins nái saman og að kjarasamningar haldi.„Ég ætla bara að leyfa mér að vera bjartsýn og að hlutirnir leysist núna á næstu klukkustundum og dögum og við verðum svo bara að taka stöðuna ef aðstæður breytast en það er allavega mikill velvilji hjá okkur til að liðka fyrir en það eru ákveðin atriði sem við getum ekki átt við sem snúa að hlutum sem eru á milli þessara aðila og þar þurfa SA og stéttarfélögin að ná saman,“ sagði Kristrún eftir að ríkisstjórnarfundi lauk síðdegis.Fulltrúar VR, fagfélaganna og Landssambands íslenskra verslunarmanna hafa beðið eftir fulltrúum Samtaka atvinnulífsins í húsnæði ríkissáttasemjara síðan klukkan eitt eftir hádegi. Naumur tími er til stefnu en félög hafa frest til fi