Tólf manns tókst í september að sleppa burt úr bænum Oleshky og komast á yfirráðasvæði Úkraínu. Herinn náði völdum yfir bænum, sem er í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu, á fyrsta ári allsherjarinnrásarinnar. Hann hefur ekki hleypt neyðarvistum þangað síðan í maí og stjórnvöld í Úkraínu vara við því að hungur vofi yfir.Rússlandsher hefur hert umsátur um bæinn síðan í vor og því hefur verið mjög erfitt fyrir fólk að flýja. Frásagnir hafa borist af linnulausum árásum á bæinn og að víða í kringum hann séu jarðsprengjur. Mannúðarsamstök hafa lýst ástandinu í bænum sem helvíti á jörðu. Frásagnir hafa borist af því að nær allur matur sé á þrotum og að fólk leggi sér gras til munns.Úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent hefur eftir yfirvöldum að sextíu manns hafi tekist að komast á brott úr b