Formenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Miðflokksins vilja að umsókn Íslands að Evrópusambandinu verði formlega ógild.Í þingsályktunartillögu formannanna er lagt til að Alþingi feli ríkisstjórninni að tilkynna Evrópusambandinu þessa afstöðu með skýrum og ótvíræðum hætti og afla í kjölfarið skriflegrar staðfestingar frá sambandinu á stöðu Íslands.Með þessu vilja þau fylgja eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn, þar sem niðurstaðan var að Ísland ætti ekki að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. „Mikilvægt er að ríkisstjórnin virði vilja þjóðarinnar eins og hann birtist í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu, tryggi að Ísland verði ekki lengur umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu í augum sambandsins,“ segir í greinagerð með tillögunni.Flu