Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur boðað helstu ráðherra landsins á sinn fund í dag. Ætlunin er að þeir ráði ráðum sínum vegna mikilla mótmæla framhaldsskólanema síðustu daga. Mikil harka er í mótmælunum og óeirðalögregla hefur skorist í leikinn. Kveikt hefur verið í húsgögnum og ruslatunnum við skóla.Talið er að um 250.000 manns hafi tekið þátt í mótmælum víðs vegar um Frakkland í dag. Helstu baráttumál mótmælenda eru að ástand skólabygginga verði bætt. Þeir segja sums staðar engar hurðir á klósettum, ekki sé nóg af stólum og borðum og að þegar hlýtt sé í veðri verði hitinn í kennslustofum kæfandi.Átök óeirðalögreglu og mótmælenda í Montpellier í dag.EPA / GUILLAUME HORCAJUELO