Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að hún og aðrir viðsemjendur frá LÍV og Fagfélögunum vonist eftir frekara samtali við Samtök atvinnulífsins í Borgartúni hjá ríkissáttasemjaraStéttarfélögin þrjú hafi fundað með Samtökum atvinnulífsins í morgun. Þá hafi hugmyndir verið kynntar fyrir samtökunum en ekki hafi enn fengist svör við þeim.Naumur tími er til stefnu í kjaraviðræðum en stéttarfélög hafa fram til klukkan 16:00 á fimmtudag til að ákveða hvort segja eigi upp kjarasamningum eða ekki.„Við teljum að þetta sé dags og nætur samtal sem á að vera í gangi samfleytt þangað til yfir lýkur,“ segir Halla. ENGIN ÁKVÖRÐUN UM FREKARA SAMTAL VERIÐ TEKIN Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvort funda eigi frekar með VR, L