Sprengjuleitarhundur fluttur inn í fyrsta sinn vegna heimsóknar Rubios

Sprengjuleitarhundur var í föruneyti Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Íslandsheimsókn hans. Hundurinn er fyrsti sprengjuleitarhundurinn sem fluttur hefur verið hingað til lands í samræmi við nýjar reglur MAST þar sem undanþága frá einangrun er gefin fyrir hjálpar- og sprengjuleitarhunda.Hundurinn var fluttur til landsins í samstarfi ríkislögreglustjóra, bandaríska sendiráðsins og MAST.„Í þessu tilviki vorum við með einn sprengjuleitarhund. Við eigum sjálf hunda hér á Íslandi en í þessu tilviki var ákveðið að láta reyna á breytingar á reglum sem við höfum verið að vinna í með MAST,“ segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra.„Það var einn hundur sem kom og hjálpaði okkur við þær sprengjuleitaraðgerðir sem þurfti að gera og það gekk
Sprengjuleitarhundur fluttur inn í fyrsta sinn vegna heimsóknar Rubios

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd