Nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð segjast vera komnir með nóg og kalla eftir betri úrræðum af hálfu stjórnvalda þegar kemur að kynferðisbrotum. Þolendur upplifi aðgerðaleysi og þöggun. „VIÐ ERUM KOMIN MEÐ NÓG“ Boðað var til samstöðufundar með þolendum kynferðisofbeldis fyrir utan Menntaskólann í Hamrahlíð í morgun og gekk fjöldi nemenda út úr tíma til að sækja fundinn.Ragnheiður Helga Víkingsdóttir, nemandi við skólann og einn skipuleggjenda, segir bæði stjórnvöld og samfélagið sýna aðgerðarleysi þegar kemur að kynferðisbrotamálum. > „Við erum bara svolítið komin með nóg.“ Hanna Imgront, nemandi og skipuleggjandi, tekur undir.„Stundum þarf maður bara að labba út og láta heyra í sér og öskra. Þetta er fyrst og fremst samstöðufundur og bara frábært að sjá hversu margir komu og sýna a