Sundlaug lokað á Sauðárkróki vegna fjárskorts

Endurhæfingarsundlaug við heilsugæsluna á Sauðárkróki verður að óbreyttu lokuð fram að áramótum vegna fjárskorts. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir frekari niðurskurð fram undan.„Almennt séð þá er rekstur heilbrigðisstofnananna mjög þungur þessa daganna og kröfur um að kostnaður sé lækkaður, þar af leiðandi eru ýmsir þeir rekstrarhættir sem eru ekki alveg bein grunnstoð, þjónusta undir skoðun. Og menn mega búast við frekari aðgerðum á næstu vikum“, segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.Hann vildi ekki svara því hvaða hagræðingaraðgerðir væru fram undan.Hann segir að með þessu sé verið að skera niður starfsemi sem heyri sögunni til víðar um landið, heilbrigðisstofnanir hafi einfaldega ekki fjármagn í verkefni sem þessi. Lauginni var loka
Sundlaug lokað á Sauðárkróki vegna fjárskorts

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd