Lítil tengsl milli manns og konu sem hann veitti lífshættulega áverka

Lítil tengsl eru á milli karls og konu sem hann réðst á í íbúð í fjölbýlishúsi við Engihjalla í Kópavogi í síðustu viku.„Það virðast hafa verið einhver tengsl en ekki mikil. Þau þekktust,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Rúmlega fertugur Íslendingur réðst á konu á heimili sínu kvöldið 28. september og veitti henni lífshættulega stunguáverka. Hún lá um tíma á gjörgæslu. Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps.Ævar segir rannsókninni miða ágætlega. Málsatvik liggi nokkuð ljós fyrir. Búið er að yfirheyra konuna sem var útskrifuð af gjörgæslu í síðustu viku. Engin vitni urðu að árásinni.Lögregla hefur lagt hald á stunguvopn. „Við teljum okkur vera með vopnið sem var notað,“ segir Ævar Pálmi.Lögregla bíður nú gagna, svo sem læknisvo
Lítil tengsl milli manns og konu sem hann veitti lífshættulega áverka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd