Tugir þúsunda franskra framhaldsskólanema mótmæltu slæmum aðstæðum til náms í fjölda borga og bæja. Yfirfvöld segja 86 þúsund mótmæla utan höfuðborgarinnar og í París var viðbúið að 20 til 40 þúsund nemendur myndu bætast mótmælin sem hófust þar í hádeginu.Mótmælin hafa stigmagnast síðustu daga og dag var fjórðungur framhaldsskóla í Frakklandi lokaður eða óstarfhæfur vegna mótmælanna.Fréttastofa AFP hefur eftir nemanda í úthverfi Parísar að þeir krefjist betri aðstæðna til náms. Hann sagði að stundum væri ekki nóg af borðum og stólum í skólastofunni, að suma daga ef þeir mættu seint í mötuneytið væri ekkert í boði nema brauðsneið og vatn og að á klósettunum væru engar hurðir, enginn klósettpappír og engin sápa.Kennari sem AFP ræddi við sagði að hitabylgjur sumarsins hefðu kynt undir óánægju