Litlar líkur að olía finnist í vinnanlegu magni

Umhverfis- og orkustofnun telur litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu og telur ekki vera forsendur til að auglýsa eftir umsækjendum um leyfi til olíuleitar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar (UOS) um olíuleit á Drekasvæðinu.„Allar niðurstöður og öll sú rýni sem við höfum lagt í, þar með talið með kollegum okkar hjá ÍSOR, eru að benda í sömu átt – að þarna séu litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni,“ segir Gestur Pétursson forstjóri UOS.„Þarna erum við með áratuga rannsóknir sem eru meira og minna samhljóma um þá niðurstöðu.“ ÓVISSA UM HVAÐ LEYNIST UNDIR JARÐLÖGUNUM Í skýrslunni segir að mikil óvissa sé um tilvist, gerð og ástand hugsanlegra jarðlaga sem gætu staðið undir myndun, flutningi og varðveislu kolv
Litlar líkur að olía finnist í vinnanlegu magni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd