Niðurstaða ítarlegrar skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar um olíuleit á Drekasvæðinu er að hverfandi líkur séu á að kolvetni finnist þar í vinnanlegu magni. Miðað við núverandi aðstæður og þekkingu telur Umhverfis- og orkustofnun ekki vera forsendur fyrir auglýsingu eftir umsækjendum um leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni.