Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland

Íhaldsflokkurinn vill koma upp loftvarnakerfi til að verja landið gegn dróna- og eldflaugaárásum. Flokkurinn hefur gefið kerfinu heitið Britannia Dome eða Bretlandshvelfinguna og líkti því í fréttatilkynningu við járnhvelfinguna sem Ísraelar hafa reist til að verjast eldflaugaárásum. Loftvarnakerfið var meðal þess sem flokkurinn kynnti á flokksþingi sínu í dag.James Cartlidge, skuggaráðherra varnarmála, sagði að áform þeirra gengju út á að samræma loftvarnir og kaupa búnað til að verjast dróna- og eldflaugaárásum. Cartlidgle sagði að Bretar væru þegar með góð loftvarnakerfi en að það þyrfti meira af þeim. Hann lagði til að Bretar keyptu eldflaugar og annan búnað til að skjóta niður dróna og eldflaugar fyrir tíu milljarða punda. Hann sagði að hægt væri að byggja upp kerfið á fimm árum.Sky N
Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd