Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios

Nánari varnarsamvinna, norðurljósin, hernaðarleg uppbygging á Íslandi, umdeilt kort Trumps og fleira var til umræðu á blaðamannafundi utanríkisráðherra Íslands og Bandaríkjanna í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun.Fyrr um morguninn hafði Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna setið fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra Íslands og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.Að fundunum loknum héldu utanríkisráðherrarnir sameiginlegan blaðamannafund í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Þetta eru helstu atriðin sem fram komu þar: * Rubio sagði að það yrði aldrei aukin viðvera eða uppbygging Bandaríkjahers hér á landi nema með samþykki íslenskra stjórnvalda. Ríkin væru áhugasöm um aukna samvinnu á ýmsum sviðum. * Ráðherrarnir ítrekuðu hve mikilvæg samvinna ríkja
Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd