Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, telur að Samtök atvinnulífsins verði að koma inn af meiri ákveðni í samningaviðræður sínar við stéttarfélögin svo kjarasamningar geti haldið.Nokkur ólga er eftir að VR, LÍV og fagfélögin fengu í gær heimild til þess að segja samningum upp. Skömmu áður sendu Samtök atvinnulífsins frá sér yfirlýsingu þar sem öllum ásökunum um svik af þeirra hálfu var hafnað.Finnbjörn segir að hingað til hafi helsta útspil samtakanna verið að einstök fyrirtæki hafi lýst því yfir að þau ætli að frysta verðlag.„Samtök atvinnulífsins eru að telja sér það til tekna, sem er réttmætt, að fyrirtæki séu að lýsa yfir að þau ætli að taka þátt í því að taka þátt í því að ná niður verðbólgu með því að halda aftur af vöruverði,“ segir hann.„Þetta eru bara örfáir aðilar innan SA sem h