Nafnlaus skoðanapistill um Elísabetu Ingu Sigurðardóttur, fréttakonu hjá Sýn, hefur verið fjarlægður af vef DV. Pistillinn vakti hörð viðbrögð og sameinaði fjölmiðlafólk úr ólíkum áttum í gagnrýni á skrifin. Þar á meðal voru Frosti Logason, ritstjóri Nútímans og Brotkastsins, Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttalesari hjá RÚV, og Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV. Fjölmargir aðrir fordæmdu skrifin í athugasemdum, meðal annars kjörnir...